Lágmenning af bestu gerð
10.02.2008 21:54:47 / froskur

búið

gylfijonsson.blog.is Tilraun 2....skoða og kommenta....já og þakkir allir þið 5-6 manns sem eru enn að kíkja hér inn, talandi um þolinmæði :) gottgottt

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 23:06:35 / froskur

Eyjar 2007

Jæja þá er komið að því aðeins örstutt í þjóðhátíð og er strákurinn farinn að hlakka fáránlega mikið til. Virðist ætla að vera vel mætt en þeir sem ég veit að verða á staðnum eru eftirfarandi:

Gylfi, Kristrún, Sigrún, Þórhildur, Vigdís, Gunni, Lena, Maggi,(ussufólk)

Gústi og kærasta. (smíði)

Bjarni, Gunni, Herdís, Arna, Jakob, Áslaug, Rakel, Ástrós, Erna, Ragnheiður (R-dalur)

Tómas, Aðalsteinn, Sigga Dóra og Birgir, Íris (BUGL)

Styrmir og Thelma, Hilmar Jón og Sísí (eyjafólk)

Arna, Siggi og Hjördís (familía)

Lúlli. (ÆSK)

Gunni. (djamminu held ég)

Gæti verið að gleyma einhverjum. Og svo á maður náttla eftir að hitta fullt af liði í dalnum sem maður hafði ekki hugmynd um að væru þar eins og venjulega.

Kem svo með færslu um hvernig var eftir helgi.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 08:49:36 / froskur

Hægt og bítandi

Kláraði prófin í gær kl 17:10...þvílíkur unaður. Á reyndar eftir eina skýrslu sem ég þarf að skila fyrir 15 maí en það verður skítlétt.

Er nánast pottþéttur á því að ég verði á NASA á lau-kvöld. Þar er Palli að DJ-ast og svo kemur Silvía Nótt og fleiri evróvision farar og troða upp. Hef aldrei farið á þetta árlega evróvison djamm, enda ekkert brjálaður fan, en allt er einhvern tíma fyrst og þetta gæti orðið fínasta kvöld. Og ekki skemmir fyrir ef ríkisstjórnin fellur á meðan mar er á djamminu.

MJÖG stutt er í reykingabannið en það á að taka gildi þann 1 júní og er ég MJÖG spenntur yfir þessari góðu breytingu.

"Hlúnkí Fréttir"

Vigtin í morgun sýndi 96,8 þannig að 5,2 kg farinn og 16,8 eftir.

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 15:49:15 / froskur

Fegurð sem byrjar við 175 cm...

Ég hef oft velt fegurðarsamkeppnum fyrir mér og ætla nú að deila vangaveltum mínum með ykkur. Mér hættir til að vera hrokafullur og Gríðarlega dómaharður á hluti sem falla mér ekki að skapi eins og kannski þið vitið sem hafið rætt við mig um retturnar. En ég ætla að reyna að vera það ekki í þessum pistli. En ég kemst samt ekki hjá því að finnast fegurðarsamkeppnir hálf kjánalegar oft á tíðum. Ég skil vel allar íþróttakeppnir því þar er árángurinn mælanlegur en ég skil ekki mælinguna á bak við fegurð. En þá segja margir hvað með tónlist, málverk, kvikmyndir..er það ekki hlutlægt líka? jú vissulega en mér finnst það samt e-h öðruvísi e-h hluta vegna, sennilega vegna þess að þar er hægt að mæla að einhverju leyti áhuga almennings betur finnst mér í vinsældum og sölu og þess háttar og svo finnst mér líka liggja meiri pælingar að baki t.d tónlistarverðlaunum eins og með besta klipping,tækni, hægt er að flokka tónlist í mismunandi flokka, best gerða myndbandið og þess háttar. Ég kemst ekki hjá því að finnast fegurðarsamkeppnir vera svolítið að staðla fegurð og leggja línurnar fyrir það hvernig aðrir "eigi" að vera. Mér finnst að fegurð sé svo rosalega margbreytileg og geti birst í svo ótal myndum að þegar ég sé 20 keimlíkar stelpur/stráka að mínu mati upp á sviði að það sé alveg búinn að taka fjölbreytnina út úr þessu. Sem dæmi má taka að eitt sinn sá ég viðtal við konuna sem sér um herra og frú Ísland og hún var spurð út í inntökuskilyrði í keppnina og þá kom meðal annars fram að það væru hæðartakmarkannir. 175 eða 180 cm eða e-h svoleiðis(veit ekki hvort þetta sé svona enn þá) Þýðir það að ég geti ekki verið fallegur? þar sem ég er aðeins 172 cm :) Nú meigið þið ekki skjóta á mig að ég sé bitur því það er ekki rétt ég er bara að meika point :) Ég get alveg trúað því samt að þetta sé gaman og þá sérstaklega undirbúningurinn, fullt af drasli frítt og svona og svaka gaman að vera "með öllum hinum stelpunum" og þess háttar en ég meina geta þær ekki bara farið í skátanna. Smá hroki í lokinn. Þó ég sé mjúkur maður fannst mér samt hálf asnalegt að sjá Oreblu strákinn fara að skæla af því hann var svo hrærður við verðlaunaafhendinguna. (þetta var 2004 eða e-h) Bara smá pælingar og ég veit að margir eru ósammála mér og finnst sjálfsagt að dæma í fegurð en mér finnst það asnalegt.

Tek að sjálfsögðu mótrökum og ef þið þorið láttið endilega í ykkur heyra um ykkar skoðun.

172 cm 100 kg maðurinn sem MÁ ekki vera með í fallegu keppnunum kveður....

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 15:57:07 / froskur

Áhugamál...

Á atvinnuumsóknum er oft spurt um áhugamál. Svona langar mig að svara "útivist, jaðarsport af ýmsu tagi, spila á gítar, ferðalög" en myndi ég svara svona gerði það mig að andskotans lygamerði og það er ekki jákvætt. Ef ég myndi svara þessari spurningu af algjörri hreinskilni og sanngirni þá yrði svarið sennilega á þessa leið "ég drekk mig mökkölvaðan af og til með vinum mínum" :( Þó skemmtileg sé að djamma þá er ömurlegt að hafa ekkert annað áhugamál. Þessu ætla ég að breyta og reyna að gera svarið líkara  lyga svarinu.

29,30 júní og 1 júlí stefni ég og Kris að vera í ruglinu á AK. Viljum fá sem allra flesta og sérstaklega fólk sem tók þátt í tímamótahelginni fyrsta helgin í júlí árið 2003.

Þjóðhátíð í ár virðist líka vera að smella saman og vil ég líka fá sem flesta.

97,7 er núverandi þyngd þannig að 4,3 eru farinn :) en 17,7 er eftir :(


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 16:28:03 / froskur

hlúnkí

Fór á árshátíð um daginn og Björgvin Frans var veislustjóri. Tók hann áramótasketsinn sinn þar sem hann tekur eftirhermur. Hann tók Jónsa, Birgittu, Eivöri, Mugison, Geir Ólafs og einn sem ég man ekki. Þetta er eitt það fyndnasta sem ég hef séð. Styllti stólnum mínum upp við sviðið og ÖSKRAÐI af hlátri í um það bil 10 mín. Mjög góð árshátíð nema DJ var misingur.

Var á Ísl meðan fjölskylda var í Boston og Florída, saknaði fjölskyldu í 18 daga en saknaði BNA ekki rassgat...

Verð að vinna á BUGL í sumar...Spennandi.

Er að reyna fá frí um Versló...eini staður i heimi sem ég verð á þá, fáum við pössun er V-Eyjar

Er annars orðinn ógeð leiður á að vera hlúnkí og vill hætta því. Var orðinn 102 kg um daginn, já ég sagði það 102 kg. Og það er ALLTOF mikið fyrir 172 cm dreng þrátt fyrir tröllvaxna vöða og axlabreidd á við Shaq. Þannig nú er það bara gulrót í öll mál og stefni á 95 kg þann 1 júlí og svo bara halda áfram niðrá við. Ákvað að henda þessu hérna inn til þess að setja aukna pressu á kallinn. Allir sem eiga eðal ráð í matargerð og önnur hint eru vel þeginn.

Bráðum fyrirverandi Hlúnkí kveður...

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 16:23:22 / froskur

Kominn fjandans tími til.............

Ég hef verið að blogga í meira en ár en var að læra að setja mynd svona inn í fyrsta skipti og óska ég sjálfum mér innilega til hamingju með áfangann og þakka Þórhildi Eddu dyggan stuðning og þolinmæði í kenslunni. En þessar myndir voru teknar í gær þegar ég og Birkir gengum á Esjuna. Þetta er skottúr ef maður heldur tempói og kjaftar ekki of mikið sem ég held reyndar að ég og Birkir höfum gert þar sem við vorum lengur að ganga niður en upp.

Hér erum við að leggja í hann.

 

Þessi er svo tekinn er upp var komið

Hérna erum við svo komnir niður, útkjaftaðir en með feiki næga orku eftir enda leitun að álíka jötnum

Þetta var þrusu gaman og mæli með að allir skelli sér hið fyrsta og stefni ég á að auka útiveru á þessu ári töluvert.(er reyndar búinn að auka hana nú þegar og get hætt með góðri samvisku en ætla ekki)

Annað sem hefur verið að brjótast í hausnum á mér undan farið er framhjáhald. Ekki það að ég sé að því en bara svona yfir höfuð. Sífellt heyrir maður sögur af fleirum sem eru að misstíga sig í þessum efnum og einnig finnst mér ég vera að heyra frá fleirum að þeir vilji vera í opnu sambandi, því annað sé ekki hægt. Ég veit að ég gæti aldrei verið í opnu sambandi en er samt farinn að spyrja mig hvort það sé hyggileg leið fyrir suma þar sem mér virðist vera gríðarlega rík tilhneiging hjá fólki til þess að halda framhjá. En maður veit það ekki. Einnig fyndist mér forvitnilegt að vita hvort einhver af lesendum þekki ENGAN sem hefur haldið fram hjá, og þá er ég ekki að tala um heyrði af þessum sem heyrði af þessum og svo framvegis. Heldur þekki ENGAN vel, í fjölskyldunni eða vinahópnum. Vona að það séu sem flestir en efa að það sé einhver.......

Gylfi Veislustjóri Jónsson.

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 22:31:33 / froskur

47%

Nú varð ég hissa 47% af lesendum telja mig ekki hafa fatastíl. Síðan hvenar urðu rúmfatalagersbuxur, of síðar jogging buxur af konunni og töff stuttbuxur í snjónum ekki fatastíll??? ég bara spyr

Sló met um daginn drakk ekkert frá 11 nóv til 2 feb, nokkuð gott þó ég segi sjálfur frá.

Er að fara vera veislustjóri á árshátíð og hef því ákveðið að kaupa mér jakkaföt. Ef einhver veit um ódýr og góð, má kommenta.

Er annars að fara til BNA 30 mars og það verður vonandi fínt þó BNA menn séu illa gefnir upp til hópa, alla vegna ef merka má Lenoinn og hann stendur nú alltaf fyrir sínu.

Hata að eiga ekki mótorhjól................

Gylfi Jónsson


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 23:12:19 / froskur

TEKINN

Ég verð nú að viðurkenna að þetta er alveg húmor við mitt hæfi. Atli sem var í strákunum var tekinn í kvöld. Voru að rugla í honum á veitingahúsi og kallinn var orðinn alveg snælduvitlaus og endaði á að rjúka út, ég hló alla vegna dátt. Síðan var sýnt frá næsta þætti og þá verður Nýlon vesenið tekið í karphúsið, hlakka mikið til, ég er alveg viss um að þær muni taka stjörnustælana á þetta. Enda er Nýlon flokkurinn orðinn heimsfrægur á Íslandi þannig að það er nú bara sjálf sagt að vera soldið merkilegur með sig fyrst svo er. Aldrei hef ég nú fílað Nýlonið að neinu viti en svo gáfu þær út í samvinnu við einhverja tedrykkju kjána lagið "ég missi vin" og fjandinn ef ég var ekki bara farinn að syngja með innan skamms. BRJÁLAÐUR yfir því, ekki nóg með að ég hlusti á C. Dion (kann ekki að skrifa celen) heldur er ég farinn að syngja með Nýlon sveitinni, fuss og svei. Ef ég vissi ekki hvað ég er töff og harður gaur gæti þetta haft áhrif á sjálfstraustið en sem betur fer veit ég allt um það hvað ég er töff. En úr Nýlon yfir í X-Factor, ekki mjög hátt skemmtanna gildi í þeim þætti, ekki alla vegna enn þá en sjónvarps sjúklingurinn ég bíð og vona að það rætist úr þessu.

Prófatörn, ritgerðir, skýrslur og fleira upp lífgandi er það eina sem maður á að vera hugsa um þessar næstu vikur. Ætli ég endi ekki á að þurfa að senda Kristrúnu og Tristan Mána að heiman í svona 2 vikur.

Annars þekki ég fólk sem er ólétt og það finnst mér mjög gaman. Sumt fólk er búið að segja frá og sumt ekki. Elska að vita. Kann líka að halda leyndarmáli þannig að þetta er allt í lagi lesandi góður ég er ekkert að fara segja frá.

Gylfi Jónsson........


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 00:00:03 / froskur

"

Það mætti stundum halda að Árni Jonsen væri að bíða eftir því að hann sé beðinn afsökunnar á illri meðferð á sér " ég gerðist sekur um tæknileg mistök, þar sem margir áttu hlut að máli en sem betur fer var ég sá eini sem fékk dóm, já já það er gott þegar svona hlutir lenda á breiðu baki" OOOOHHHHHHHH ég gæti ælt yfir sjálfan mig þegar ég heyri svona rugl. Gat kallinn ekki bara unað við að hafa næstum skákað Árna Matt og vera á leiðinn á þing, nnneeeeiiii hann varð að koma með svona fáránlega staðhæfingu sem lætur það vera enn meira pirrandi að hann hafi fengið uppreisn æru og sé á leiðinni á þing. Svo er hlunkurinn líka kominn í FEITIR Í FORM, hvað er málið það mætti halda að þetta væri einhver þjóðhetja á Íslandi. Burt með Árna af þingi og enn þá frekar burt með hann af þjóðhátíð, klárlega ömurlegasti parturinn þegar hann fer að gaula.(eini ömurlegi parturinn, ég elska þjóðhátíð) En jæja ég þurfti bara að fá smá útrás, en það þýðir ekkert að grenja yfir þessu eins og píka bara ekki kjósa D.

Já og líka gaman að sjá undirtektirnar ég stefni á að verða duglegri að skrifa í framtíðinni. Ef einhver hefur skoðun á veseninu Árna þá má sá hinn sami endilega láta ljós sitt skína.

Kveðja: Gylfi Jónsson


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 13:21:25 / froskur

Kannski komin tími til

Mér til mikillar furðu rambaði ég inn á þessa síðu og varð þess var að einhvað bjartsýnt fólk leggur enn leið sína hingað. Ákvað því að segja eitthvað. Í gær var haldinn ganga til að mótmæla og vekja athyggli á þeim vanda sem nauðgannir eru í samfélaginu og var gegnið frá Hlemmi kl 00:00 að hinu húsinu. Ég mætti vitaskuld en leiðinlegt þótti mér að sjá hversu fáir mætti, en eins og mín ástkæra kona bennti á þá gerast góðit hlutir hægt og þessi ganga verður sennilega miklu stærri að ári. Ég er búinn að vesena mér í gegnum mótorhjólaprófið og býð nú eftir að fá hjól upp í hendurnar, þannig að þið þarna úti sem eigið kraftmikinn mótorfák sem stendur óhreyfður þá tek ég við honum. Maður er bara á fullu að vera pabbi, kærasti og námsmaður og gegnur það bara ágætlega. Í lokin vil ég hvetja ALLA til þess að taka fyrstu helgina í Júli á næsta ári frá því þá eins og flestir ættu að vita verður tóbaksfíklunum úthýst af skemmtistöðum(kominn fucking tími till) og þeir sem réttilega eiga réttinn fá loksins að njóta sín í umhverfi sem er ekki metað drápsreyk. Þá getur maður líka farið að fara með barnið sitt inn á kaffhús án þess að eiga á hættu að það verði fyrir tóbaksreyk. 1,07,07 er dagur sem ég býð spenntur eftir, stefni á að halda reyklaust partý til að fagna þessu. Þið bjartsýnu hræður eða hræða mættuð skilja eftir eins og eitt komennt svo ég viti hver þið/þú eruð og þá veit aldrei nema önnur færsla komi inn.

Bestu kveðjur Gylfi Jónsson


» 10 hafa sagt sína skoðun

02.07.2006 23:44:06 / froskur

Tristan Máni Gylfason


» 10 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 23:34:10 / froskur

Nefningin

Sæl og marg sæl

Jæja þá er komið nafn á prinsinn og hlaut hann nafnið Tristan Máni og er Gylfason. Ég og Kristrún héldum nefningarveislu í síðustu viku og tókst hún mjög vel og var vel mætt og Tristan Máni var mjög rólegur og góður í veislunni sinni. Gjafir voru stórglæsilegar og kærar þakkir fyrir okkur. Við ákváðum að nefna eins og áður hefur komið fram en skíra ekki og höfðum við okkar ástæður fyrir því. Eftir að við tilkynntum um að við ætluðum að nefna en ekki skíra hefur maður fengið ýmis komment bæði jákvæð og neikvæð og hefur mér komið á óvart hversu undarlegt fólki finnst þetta þar sem að þetta er mér mjög eðlilegt og ef að þér lesandi góður finnst þetta skrítið og ert í einstefnugötu hvað varðar skírnir þá hvet ég þig til þess að ræða þetta við mig/okkur og fá okkar vinkill á þetta.

Annars var fyrsta vaktin mín í Reykjadal í gær og er yndislegt að vera byrjaður að vinna þó að ekki hefði verið slæmt að eyða sumrinu með litlu fjölskyldunni minni.

En jæja held að ég ætli að drífa mig í háttinn til að vera ferskur í vinnunni á morgun.


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.05.2006 20:05:43 / froskur

Drengur

Drengur varð það eins og sónar myndir spáðu fyrir um. Fæddur kl 7:53 þann 22 apríl og var 18,5 merkur og 55 cm þannig að ég held að hann verði búinn að ná pabba sínum um fermingu en bara gaman að því, því eins og ég og fleiri hafa sýnt fram á er hægt að vera ógeðslega fucking harður þó maður nái ekki 175. Hann er 2 vikna í dag og dafnar vel og drekkur eins og herforingi. Fór í fyrsta skipti í dag út að ganga með foreldrum sínum í góða veðrinu.

Annars eru helv próf+ritgerðir sem að reyna að eitra huga minn þessa daganna og halda mér frá konu og barni. Þeim gengur svona upp og ofan með ætlunnarverkið og er staðan eftirfarandi. 2 próf og 2 ritgerðir búnar og 2 próf og 1 ritgerð eftir þannig að útlit er fyrir að þetta klárist nú allt á endanum.

Maður er búinn 15 og svo byrja ég straks 16 í vinnunni uppí R-dal og það leggst rosalega vel í mig. Verður fínt að losna frá læriveseni í 3 mán og vinna hálfan mánuðinn og vera að fjölskildast hinn helmingin. Reyndar munu kona+barn stinga af til Hollands 6-22 júní þannig að áhugasamir áfengisneytendur geta haft samband á þeim tíma því við eitthvað verður maður að stytta stundirnar á meðan fjölskyldan er úti og hvað er betra enn að taka upp sína fyrri kunnuglegu iðju.

Ekki komið nafn á drengin enn þá en úr því verður bætt von bráðar og þið munið væntanlega fá að vita það með tímanum.

Gangi vel í prófaveseni eða vinnu eftir sem við á nema þeim sem eru í hvorugu gangi ykkur vel í einhverju öðru.

DaddýÓ kveður í bili rígmontinn með frumburðinn :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2